| „. . . frumlegt og óvenjulegt form á skáldsögu . . . Þessi margradda frásögn er sérlega vel heppnuð og nær kannski óvæntum hápunkti í miðhlutanum . . . Strandhögg er mjög vel heppnað verk, djörf og læsileg bók sem skipar Rúnari Helga Vignissyni í hóp framsæknustu og áhugaverðustu höfunda okkar."
Jón Hallur Stefánsson, Rás 1
„Þegar á heildina er litið er gaman að Strandhöggi og byggingin er vel heppnuð. Rúnar Helgi segir skemmtilega frá, er orðheppinn og oft drepfyndinn á einhvern kæruleysislega kvikindislegan hátt."
Sigríður Albertsdóttir, DV
„Bókin byrjar mjög vel með sterkum sögum sem eru afbragðsvel skrifaðar. Benda má sérstaklega á sögurnar Strandstöð og Hendur sundurleitar."
Soffía Auður Birgisdóttir Morgunblaðinu
„Sögurnar í Strandhöggi eru fjölbreyttar að efni og yfirbragði. Þær eru vandaðar og koma lesandanum ævinlega á óvart . . . Rúnar Helgi Vignisson hefur hér bætt ágætu verki við höfundarverk sitt og fest sig í sessi sem einn athyglisverðasti höfundur okkar af yngri kynslóð."
Gunnlaugur Ástgeirsson, Tímariti Máls og menningar
„. . . þetta er hans besta bók. Hér er fengist við hlutina af krafti."
Kristján B. Jónasson, Dagsljósi, Sjónvarpinu
|